GUINNESSFÉLAGIÐ
Lög og reglur félagsmanna.
1. Heimili og varnarþing félagsins er Kjalarness prófastsdæmi.
2. Tilgangur félagsins er að rækta andlegt atgerfi og samheldni félagsmanna og að auka víðsýni þeirra með heimsókn í höfuðstöðvarnar á Írlandi.
3. Félagsmenn geta flestir orðið, sem fæstir þó, og skal félagsaðild samþykkt að fengnum meðmælum frá tiltölulega ábyrgum stofnfélaga, og skal umsóknin borin fram í bundnu máli.
4. Fjarveru skal tilkynna fyrir klukkan 12 á hádegi föstudags. Svo og skal tilkynna seintmætingar til leiðtoga fyrir klukkan rúmlega 17:00.
5. Allir félagsmenn skulu sitja í stjórn. Félagsmenn bera einhverja ábyrgð á eigin gjörðum, og eigi aðrir.
6. Það telst lögformlegur fundur, ef tveir eða fleiri gildir limir takast tali með beinum eða óbeinum hætti, s.s. með viðtækjum sem viðkomandi ber að jafnaði á sér, eða með tilliti til framtíðar tæknihorfa.
7. Utanað komandi áreiti frá aðila sem þjónar til borðs og/eða sængur, skal takmarka við eitthundrað og áttatíu sekúndur.
8. Þjóðsöngur félagsins skal vera "MY GOODNESS, MY GUINNESS, LETS HAVE ANOTHER PINT" á erlendri grundu og "VIAGRAFJALL OG SKARÐSHEIÐI"í heimahögum.
9. Lagabreytingar skulu eingöngu vera í höndum stofnfélaga að þeirra eigin geðþótta.
10. Gildum limum er SKYLT að þykja Guinness góður drukkur.