Guinness-rímur og annar góður kveðskapur

 

Sem fram kemur í lögum félagsins skal aðildarumsókn í Guinnessfélagið borin fram í bundnu máli.  Hefur þetta orðið til þess að margháttaður kveðskapur hefur orðið til á fundum félagsins.

Bessi Aðalsteinsson heyrði um tilvist Guinnessfélagsins einhvers staðar ofan snjólínu og einsetti sér samstundis að ná því marki að verða þar gildur limur.  Honum þótti þó heldur snúið að setja saman bögu til að hljóta inngöngu og kom þá í ljós sérákvæði við lög félagsins sem geymt er í munnlegri geymd, en þar er gert ráð fyrir að gott spakmæli geti komið í stað kveðskapar, enda búi það yfir ríkulegu sannleikskorni.  Bessi setti þá hljóðan, hugsaði um stund og mælti af munni fram:

"Guð er svartur"

Þótti þetta svo vel mælt og hafa svo margháttaða tilvísun að aðild hans var samþykkt af öllum ábyrgum stofnfélögum.

 

Einar Kjartansson fer gjarnan ótroðnar slóðir og hefur reyndar sýnt að hann kemst um þær slóðir á leiðarenda, hvernig sem hann er annars útbúinn.  Nú hefur Einar reyndar um nokkurt skeið staðið í smíði fararskjóta sem eflaust mun duga honum nokkuð á ótroðnum slóðum.  En á þeim slóðum sem hann fór um til að öðast inngöngu í Guinnessfélagið hefði sá ágæti fjallabíll dugað skammt þvi Einar fór þá leið að yrkja atomljóð.  Þar fór því lítið fyrir rími eða hefðbundnum bragarháttum, auk þess sem segja má að það sé styttra en meðalatomljóð.  Innihald þess og skilaboð voru hins vegar skýr því það hljóðaði svo:

"Ég óska eftir inngöngu í Guinnessfélagið"

Bókmenntafræðingar hafa unnið nokkuð í því að greina þetta ljóð og telja að þarna gæti áhrifa póstmódenista.  Guinnessfélagar létu sér hins vegar nægja að úrskurða svo að skilyrðum fyrir inngöngu hafi verið fullnægt í öllum atriðum.

 

Sigurjóni Sindrasyni þótti ekki við hæfi að kasta til hendinni þegar kom að því að flytja umsókn sína í Guinnessfélagið.  Hann tók sér góðan tíma til verksins og sótti ótal undirbúningsnámskeið áður en að sjálfri inngöngunni kom.  Það kom því ekki á óvart að umsóknin væri fulltíða ferstikla með endarími, stuðlum og höfðustöfum.

Að yrkja umsókn í Guinness bjór
krefst afarþorsta í göfugt þjór
því leggur Sigurjón sjálfur, minn
sína umsókn í klúbbinn inn.
 
 
Nú er það svo að stofnfélagar þurftu ekki að flytja umsókn um inngöngu í félagið, því eins og eðlilegt er hafa þeir verið félagar frá því í árdaga og sumir hverjir lengur.  Það væri hins vegar vel við hæfi að þeir kveði sinn kveðskap og staðfesti þar með skírn.  Þeir þrír félagar sem hér að ofan eru nefndir eru allir fullgildir félagsmenn fyrir tilstilli síns kveðskapar, en einn er þó til sem gerst hefur félagsmaður á síðari stigum án þess að flytja kveðskap.  Það er Birgir Sigurðsson.  Innganga Birgis fór fram með þeim hætti að lengi verður geymt í manna minnum, en þó aðeins í munnlegri geymd.  Verður látið nægja hér að segja frá því að á páskafundi félagsins árið 2000 sem haldinn var í Jökulheimum, fjarri allri mannabyggð, kom lögfræðingur nokkur í því skyni að sýna fram á með lögskýringum og rökfestu að Birgir eigi skýlausan rétt á aðild að félaginu, gott ef ekki samkvæmt stjórnarskrá.  Þó lög Guinnessfélagsins séu jafngild stjórnarskránni og skuli gilda ef misræmi er þar á milli, þá náði lögfræðingur þessi þvílíku tangarhaldi á leiðtoga félagsins að niðurstaðan varð sú að Birgir var skráður í félagaskrá þegar í stað og án mikilla undanbragða.