Sunnudaginn 10. mars 2002, fóru nokkrir félagar í bíltúr.  Morguninn lofaði ekki góðu, hundslappadrífa og dimmt yfir.  Fimm bílar lögðu af stað frá Lelect upp að Bragabót.  Þar skánaði skyggnið til muna og ákveðið var að halda áfram.  Reyndum við Skjaldbreið en snjórinn var töluverður eins og sjá má á myndunum.  Snérum þar við og norður fyrir Hlöðufell og upp Hagafellsjökul Vestari upp í 1170 m.y.s.  Þar var stefnan tekin á Kerlingafjöll í miklum púðursnjó sem gekk yfir Palla á móti sem sá ekki neitt fyrir vikið.  Var því um blindakstur að ræða með leiðbeiningum gegnum CB. Þá var stefnan tekin niður við Skálpanes og þaðan niður á Bláfellsháls.  Góður túr í glimmrandi veðri.
Myndir: Palli á móti

Palli á móti og kóarinn Grettir í kafsnjó í Skjaldbreið

Nýja gormafjöðrunin að framan hjá Palla á móti virkaði vel, framgormar úr 80 Cruiser og Ranco 9000 stillanlegir demparar.

Krúserinn hans Skröggs virkaði ekki illa heldur á sínum 44" gleðigúmmíi

Flaggskipið á farti.

Einar Fürher á sínum Séra Jóka sýndi líka svo ekki var um villst að vel útbúinn léttur bíll er ekki slæm uppskrift.  Bessi var líka með nýjungar undir sínum bíl, gormafjöðrun að framan.  Að auki er hann með milligír og allan pakkann.

Á leið upp Hagafellsjökul Vestari með Hlöðufell í baksýn.  Færið var þungt svo hitanálin hjá Palla á móti sló persónulegt met.

 Hér er Flaggskipið með Gunnu undir stýri komin á fleygi ferð í púðrinu...

 ... og þeysir framúr Palla á móti.

Skálpanes 847 m.y.s.

Kerlingafjöll í síðdegissól

Aftur á aðalsíðu