Nokkrir Kára-Guttar fóru á Vatnajökul 24.-25. feb 2006.  Fórum föstudagsmorgun af stað og ókum Jökulheimaleiðina á Grímsfjall þar sem var gist í tvær nætur.  Laugardagurinn var notaður í frábæran túr á Öræfajökul í argandi blíðu.  Sunnudag var farin sama leið heim, en tekin krókur í Veiðivötn.  
Myndir: Gunni, Skúli Haukur og nokkrum nappað af Sigurjóni til að fullkomna verkið.

Fleirri myndir hjá Þrándi og Sigurjóni

Nýjasta tækið í flotanum er þessi glæsilegi Patti hjá Birgi.

Fordinn hans Þrándar er annar nýkominn í flotann.

Hann fékk ágæta eldskírn þegar brotnaði undan honum á bökkum Tungnaár.  Gekk þó ágætlega að ná honum upp án skemmda með spili, spotta og hæfilegum mokstri.

Breska heimsveldið sat þarna á spilinu í tilraun til að komast á góðan stað til að ná upp Fordinum.  Var þó auðvelt að ná honum upp.

Snjóskúlptúr á Vestari Svíahnjúk.  Mótaður af samspili hita og kulda.

Þó Grímsvatnaskálinn sé oft kuldalegur að utan er hann alltaf jafn hlýlegur að innan

Þegar klukkan sló 17.23 var kominn tími á Guinnessfund og var hann haldinn í góða veðrinu uppi á Grímsfjalli.

Einar var rétt merktur á Guinnessfundinum.  Beri menn rétt merki á fundi heitir það að vera merkilegur.

Ekið á móti sól til suðurs.

Hillingar mögnuðu fjallasýnina og brugðu upp myndum sem eru kannski ekki alveg í samræmi við raunverulegt landslag jökulsins.

Snæbreið og Hnjúkurinn nálgast.

Horft ofan af Snæbreið.

Næsta síða