Hér annars staðar á vefnum eru myndir frá Þórsmerkurferð í byrjun desember 2001.  Þessar myndir eru frá ferð á sama stað en hálfum mánuði síðar og við allt aðrar aðstæður.  Haldin var veisla í Mörkinni af tilefni þess að einn af Kárafélögum er orðinn gamall/eldri (virðulegri og gáfaðri)
Myndir: Halli Teits

Að venju var safnast saman við Select í morgunsárið.

Harald öslar yfir Hvanná, en hún hefur verið nokkuð víðförul í vetur.

Þegar komið var að Krossá stillti flotinn sér upp á bakkanum, meðan GrettirSig reið á vaðið á gamla Fjórgang.

Vatnið náð Háfeta langleiðina í klof, allavega upp í drifskaft.

Allir komnir yfir, stórir sem smáir.  Litli SéraJóki lengst til vinstri fór yfir án þess að þurfa að grípa til bragða frelsarans og ganga á vatninu.

Afmælisbarnið við háborðið, en eitthvað apalegur að sjá.

Prúðbúnir (?) veislugestir

Afríkufarar með yngismey eina milli sín.

Þetta mun vera "hestafjölskyldan" í ham

Ljónin sýna klærnar.

Eitt af verkefnum var að púsla saman myndum af "þeim gamla".  Margar hendur unni verkefnið af öryggi.

Bjarki sýpur úr tærri fjallalind.

Í eina tíð var til "Grettisbæli" í Þórsmörk og þarna er "Bergdísar brú".  Ætla má að þau hjónin Grettir og Beddý séu tíðir gestir í Mörkinni.

Eins og sjá má voru aðstæður eins og á hverjum öðrum vordegi.

Á heimleið með afmælisgjafirnar, m.a. þennan forláta aðventukrans, fagurskreyttan, að ógleymdum teygjuspottanum góða þarna vinstra megin.  

Aftur á aðalsíðu