Farið 2005

Þann 11. mars héldu Kárakonur í sína fyrstu kvennaferð. Gist var á Flúðum og fór meirihluti hópsins þangað á föstudagskvöldi. Um upphaf ferðar var þetta að segja. (15 Mb)
Myndir: Beddý, Helga, Ingibjörg og Ylfa

Meirihluti hópsins (Helga, Ingibjörg, Guðrún, Jóhanna og Magga) kom að Flúðum á föstudagskvöld og skipulagði ferðaáætlun laugardagsins. Í bítið á laugardeginum var tekið til nesti meðan beðið var eftir að Ylfa og Beddý mættu á svæðið.

Eftir að Ylfa og Beddý höfðu gert innrás í vitlausan bústað og mætt þar svefndrukkinni konu rötuðu þær loksins til okkar. Þá var ekki eftir neinu að bíða og þeyst af stað.

Eftir að hafa smellt af hópnum mynd...

 

...og tankað á Geysi var haldið af stað inn á Kjalveg. Í þetta sinn þurfti bensínkarlinn ekki að hjálpa okkur.

 

Fyrsta brekkan að baki við Grjótá. Einni úr hópnum þótti nú vissara að ganga niður.

 

Veðrið var frábært, útsýnið engu líkt og nokkuð mikið frost.

 

Blaðrað milli bíla, það geta nefnilega ekki allar talað í talstöðvarnar í einu!!!
 

Hleypt úr.
 

 

"Hvað fóruð þið niðr'í stelpur?
 

Komnar í Skálpanes...
 

...og nestið tekið upp. Samlokurnar frusu í höndunum á okkur. Síðan var haldið áfram inn á Langjökul.

 

Á köflum var blindbylur á jöklinum og þegar skyggnið hvarf alveg var ákveðið að snúa við.
 

Fljótlega komum við aftur í sólina. Eru þeir ekki krúttlegir?  :o)

Næsta síða