GPS-punktar
Eftirfarandi punktar eru samkvæmt bestu vitund en birtir án ábyrgðar. Sérstaklega viljum við vara við að aka blint eftir GPS-punktum á jöklum þar sem færar leiðir á jöklum geta tekið miklum breytingum á milli ára. Einnig getur verið skekkja sem nemur allt að 100 m vegna ruglunar á GPS-kerfinu (hryðjuverkavarnir hjá Kananum!) og því þarf að gæta sérstakrar varúðar þar sem eru gil, jarðhitasvæði, ár, klettabelti eða aðrar hættur. Punktarnir eru bæði í skrám fyrir Nobeltec forritin (Navtrek og Visual Series) og svo einfaldri textaskrá. Til að sækja skrárnar, vinstrismellið á tengilinn og veljið "Save target".
Hveragilið í Kverkfjöllum Heitur baðfoss í Hveragili austan í Kverkfjöllum (sum kort segja Hvergil, en önnur Hveragil) Punktarnir voru teknir í ferð Fjallavinafélagsins um Hvítasunnu 2001. Fyrsti punktur er á jökulsporði Brúarjökuls og liggur leiðin niður jökulinn og upp norð-austan í Kverkfjöllum að niðurgöngu ofan í gilið. Síðan er um 20 mín. gangur upp eftir gilinu að fossinum.
Eyjafjallajökull Punktar teknir í ferð yfir Eyjafjallajökul þann 20. janúar 2002. Farið var upp hjá Hamragörðum, yfir jökulinn og niður Fimmvörðuháls. Ath. að punktarnir nýtast aðeins til viðmiðunar þar sem víða beggja vegna jökulsins þarf að leita eftir heppilegum leiðum í landslaginu. T.d. þegar ekið er frá skála Útivistar í átt að Baldvinsskála (Fúkka) þarf að fara til baka vestur eftir hryggnum og svo niður norðan við hrygginn.
|