Eyjafjallajökull

Fróðleikur frá Helgu Finnsdóttur um Eyjafjallajökul.  Helga er landfræðingur og starfar sem sérfræðingur hjá Vatnamælingum Orkustofnunar.  Jafnframt er hún einn helsti sérfræðingur Fjallavinafélagsins um náttúrufar.

 

Alþjóðlegt ár fjallsins

Sameinuðu þjóðirnar hafa samþykkt að árið 2002 sé alþjóðlegt ár fjallsins, og er það okkur mjög að skapi.  Fjallavinafélagið hefur markað sér umhverfisstefnu af því tilefni.

 

Kárahnjúkavirkjun

Hugleiðingar nokkurra félagsmanna Fjallavinafélagsins um Kárahnjúkavirkjun og stífluvegg ofan í Dimmugljúfrum.  Segja má að leiðangursmenn úr siglingunni gegnum Dimmugljúfur árið 1999 þekki gljúfrin og leyndarmál þeirra betur en margir aðrir.  Umhverfisráðherra varð að vísu ekki "bergnumin" við að heimsækja svæðið, en svo virðist sem áhrifin á þessa einstaklinga hafi verið meiri og magnaðri.

 

Vatnajökull

Fróðlegur pistill um Vatnajökul, byggður á punktum frá Oddi Sigurðssyni, jarðfræðingi hjá Vatnamælingum Orkustofnunar.  Hér er m.a. útskýrt á greinagóðan hátt hvaða atburðarás á sér stað í jökulhlaupum og framhlaupi jökla, afkomu jökla og fleira.

 

Gönguferðir

Nokkrir punktar úr reynslubrunnum ýmissa göngumanna um hvernig maður undirbýr sig fyrir lengri gönguferðir þar sem gengið er með allt á bakinu.

 

Spottaspeki

Gott dráttartóg er góð eign, en hvernig á að umgangast og hirða um spottann.

 

Játningar Land Rover eiganda

Land Rover hefur lifað með þjóðinni í gegnum sveitasamfélag 20. aldar.  Persónuleiki þessa jeppa er sérstakur og sumir segja að persónuleiki eigenda þeirra sem jafnvel enn sérstakari.