Hálendishandbókin kom fyrst
út 2001 og bætti þá úr brýnni þörf því engin hliðstæð bók með
alþýðlegri leiðsögn um ökuleiðir, gönguleiðir og áfangastaði á
hálendinu var þá til. Viðbrögðin voru með eindæmum góð því á tveimur
árum seldust 12 þúsund eintök af bókinni og er hún löngu uppseld.
Nú hefur loks verið ráðist í
veglega endurútgáfu með mörgum forvitnilegum viðbótum. Þess er rétt
að geta að fram til 15 júní geta eigendur eldir útgáfu komið með
hana í bókaverslanir Eymundsson og fengið 1000 króna afslátt á nýrri
bók.
Við
nýja útgáfu bókarinnar er rétt að nefna eftirtalin
nýmæli:
Útliti og framsetningu
efnis í bókinni hefur verið breytt nokkuð
og má telja líklegt að hún sé aðgengilegri og enn auðveldari í
notkun þeim sem eru að hefja ferðalög af þessu tagi.
Upplýsingar um sumar
leiðir eru uppfærðar en bætt við upplýsingum um gönguleiðir og
áfangastaði og áhugaverðar leiðir utan miðhálendis.Þarna
koma fyrir almenningssjónir myndir og leiðsögn um fáfarnar slóðir í
eyðibyggðum, fornar heiðaleiðir sem nú eru aflagðar og ýmsa afkima
sem varla teljast til hins eiginlega hálendis en eru eftirsóttir
viðkomustaðir engu að síður. Má í þessu samhengi nefna staði eins og
Hrafnholuveg Elísar Kjarans milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar,
Vaðlavík og Viðfjörð á Austfjörðum, Þakgil í Mýrdal og fleiri staði.
Sem fyrr er það lagt til grundvallar í leiðsögn bókarinnar að akstur
á fjöllum sé hluti af alhliða útivist og náttúruskoðun en minni
áhersla lögð á seinfarnar leiðir til að aka akstursins vegna.
Gönguleiðir, náttúruperlur og sögufrægir staðir er það sem laðar
okkur til fjalla.
Mjög margar nýjar ljósmyndir eru í
bókinni og þar af nokkrar eftir Pál Stefánsson sem getið hefur sér
gott orð á þessu sviði.
Síðast en ekki síst fylgir bókinni
margmiðlunardiskur þar sem er að finna yfirlit yfir vöð á hálendi
Íslands, almennar leiðbeiningar til ferðalanga um akstur í
straumvatni og 80 myndskeið (videó) af bílum að aka yfir ár sem
verða á vegi manna á þeim leiðum og svæðum sem lýst er í bókinni.
Diskinn er hægt að skoða
í öllum algengum heimilistölvum en þar fer auk þess mjög í vöxt að
ferðalangar hafi tölvur í bílum sínum.
Þetta gefur mönnum færi á að skoða heima í stofu þau straumvötn sem
þeir hyggjast aka yfir á tilteknum leiðum, bera vatnsdýpt og
aðstæður saman við sinn eigin bíl og fræðast um aðferðafræði við
akstur í vötnum.
Að
þessu sinni er það útgáfufyrirtækið Heimur hf í Borgartúni sem gefur
bókina út en það keypti útgáfuréttinn af Skerpu hf. síðla árs 2003.
Heimur sinnir alhliða útgáfu á sviði ferðamála og má nefna Iceland
Revivew, Ský, Atlantica meðal þess sem þar er gefið út en einnig
gefur Heimur út Á ferð um Ísland á þremur tungumálum.