Játningar Land
Rover eigandanTil
að byrja með er rétt að leiðrétta þann útbreidda misskilning að
Land Rover leki gjarnan olíu. Það er alrangt. Þeir eru
bara að merkja sér svæði.
Þá er einnig staðreynd
að öfugt við það sem margir halda, þá þjást Land Rover eigendur
ekki af einhvers konar áráttu. Þvert á móti, þeir njóta hennar.
Eins er vert að geta um
samanburðarpróf sem gert var á Land Rover og ónefndum japönskum
jeppa. Teknir voru tveir kettir og lokaðir inni í sitthvorum bílnum
og látnir vera í einn dag. Kötturinn í japanska jeppanum var dauður
þegar farið var að tékka á þeim en kötturinn í Land Rovernum var
farinn.
En Land Rover eigendur vita
hverjir þeir eru og efast ekki um það. Þar þarf ekki
sálfræðing til að skilgreina þetta því þú veist að þú ert Land
Rover eigandi ef:
Þú stendur út í
Krossá til að gá hvort hún er í lagi fyrir ferðafélagana.
Þú ferð út í búð
að kaupa laugardags DV og kemur ekki aftur fyrr en á mánudag, án DV.
Þú getur notað
háþrýstisprautu til að þrífa bílinn ... að innan.
Heppilegasta leiðin frá
A til B er þar sem sjóskaflinn er stærstur.
Dældin á
bílstjórahurðinni og rispan á afturhleranum eru fegurðarblettir.
Þú færð nýjan Land
Rover frá B&L og skilar honum því það vantar dældirnar á
hliðina.
Þér finnst bíllinn
þinn fallegri þegar hann er hæfilega skítugur.
Þú ferð á
bílaþvottastöð með bílinn þinn og er neitað um aðgang.
Þegar þú loksins
þværð bílinn óska vinnufélagarnir þér til hamingju með nýja
bílinn.
Þú tekur bílaleigubíl
í útlöndum og undrast hvað kemur vond lykt ef þú drepur í
sígarettu á gólfinu.
Þú bölvar og ragnar
meðan þú ert í viðgerðum, en ert samt alltaf með bros á vör.
Þú pantar nýjan Land
Rover, en heimtar að liturinn á honum sé "Mud Brown".
Þú kennir í brjóst um
þá sem aka um á 8 milljón króna Cruiser.
Þú átt stöðugt
erfiðara með að fá konuna þína til að samþykkja að þið farið
á þínum bíl í veislur.
Þú ert sá eini í
götunni sem mokar ekki innkeyrsluna á veturnar.
Við vatnaakstur ertu
búinn að koma þér upp ákveðinni viðmiðun um hvað
vatnsyfirborðið má ná hátt ... innan í bílnum.
Þú hefur svefnpoka og
þurrmat að staðaldri í bílnum því það er aldrei að vita hvar
þú endar eða hvenær það kemur sér vel.
Þú gleymir að skrúfa
upp rúðuna kvöldið fyrir rigninganótt, en það kemur ekki að
neinni sök.
Þú ferð með mömmu
þína í bíltúr og hún lendir í því að þurfa að hjálpa þér
að velta Land Rovernum aftur á hjólin.
Þú notar íssköfuna á
framrúðuna að INNAN VERÐU.
Götin í gólfinu fyrir
ofan pústið gefa meiri hita en miðstöðin.
Þú finnur ekkert
almennilegt stæði að vetrarmorgni eftir rösklega snjókomu, því
það er búið að moka þau öll.
Þeir sem kunna góðan
brandara um Land Rover mega gjarnan senda þá á vefstjóra.
Ef hann móðgast ekki illa er aldrei að vita nema hann bæti þeim við.
Að lokum nokkrar góðar
hugmyndir að "bumper-sticks" á Land Rover:
Stop
Laughing, put the camera away and get a tow rope!
If my
wife was this dirty, I'd have stayed at home!
The car
in front of you is NOT A BLOODY JEEP!!!
To
Infinity & Beyond 1948-2003
Land
Rover 0-60 in Three Weeks!
A Land
Rover is for LIFE - not just for Christmas
Keep
Your distance - you never know what will fall off
Warning:
This Vehicle Bites!
Please
remember - YOU ARE MY CRUMPLE ZONE
I may
be driving a tin bucket - but which scrap yard will yours be in when
it's the same age?!
Cats
have nine lives, but this Land Rover has 750's!!
If you
can read this please flip me over!
WARNING:
This Landrover may contain NUTS!
Don't
wash me - just plant Potatoes!
This
Vehicle has more leaks than the Titanic
Aftur
á aðalsíðu
|