Lög Fjallavinafélagsins Kára


1. gr.
Heiti félagsins.
Heiti félagsins er Fjallavinafélagið Kári. Heimili þess er Skálagerði 17, 108 Reykjavík.


2. gr.
Eðli félagsins.
Fjallavinafélagið Kári er áhugamannafélag um náttúruna, upplifun hennar á ævintýralegan hátt samtímis því að stuðla að verndun hennar.


3. gr.
Hlutverk og tilgangur félgasins.
Hlutverk Fjallavinafélagsins Kára er að stuðla að ævintýralegri náttúruupplifun, vekja áhuga fólks á náttúrunni og stuðla að verndun hennar.


4. gr.
Aðild.
Aðildarumsókn skal borin upp á aðalfundi og hljóta samþykki 2/3 hluta greiddra atkvæða.  Til þess að félagsmaður hljóti fulla félagsaðild með atkvæðarétti á aðalfundi og kjörgengi til trúnaðarstarfa þarf hann að hafa tiltölulega flekklaust mannorð, bera virðingu fyrir náttúrunni og bera nafnið Haukur.  Félagsmenn sem uppfylla ekki síðast talda skilyrðið hljóta þó öll önnur réttindi og skyldur sem aðild að Fjallavinafélaginu Kára felur í sér, þ.m.t. rétt til að bera tákn félagsins, sem er Þórsmerkið.


5. gr.
Brottvísun eða úrsögn félaga úr samtökunum.
Heimilt er á aðalfundi, með 2/3 hluta greiddra atkvæða, að víkja félögum úr Fjallavinafélaginu Kára ef þeir gerast brotleg við lög eða samþykktir þess. Úrsögn úr Fjallavinafélaginu Kára skal tilkynna stjórn félagsins skriflega. Við úrsögn eða brottvísun á félagi engar kröfur á hendur félaginu.


6. gr.
Aðildargjald, skipting kostnaðar ofl.
Aðildargjald skal greitt fyrirfram, eigi síðar en 1. júní ár hvert. Reikningsár félagsins er á milli aðalfunda. Reikningum skal lokað 14. dögum fyrir aðalfund og þeim skilað til endurskoðenda eða skoðunarmanna félagsins
er kosnir skulu á aðalfundi. Ef sú leið er farin að hafa skoðunarmenn skulu þeir vera tveir.


7. gr.
Aðalfundur.
Aðalfundur er æðsta vald í málefnum félagsins. Rétt til setu á aðalfundi hafa allir skráðir félagar sem greitt hafa ársgjald og fer hver þeirra með 1 atkvæði. Aðalfundur skal haldin í október ár hvert og til hans skal boða á tryggan hátt með minnst 14 daga fyrirvara. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum í málefnum aðalfundar nema annað sé sérstaklega tekið fram í lögum þessum. Aðalfundur er lögmætur ef helmingur félagsmanna mæta á fundinn. Auka aðalfund skal halda fari helmingur félagsmanna fram á það skriflega við stjórn samtakanna. Á slíkum fundi má framkvæma hið sama og á aðalfundi.


8. gr.
Dagskrá aðalfundar.
Dagskrá aðalfundar skal vera:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Framlagning ársreiknings.
3. Umræður um skýrslu og ársreikning.
4. Lagabreytingar.
5. Kosning stjórnarmanna.
6. Kosning skoðunarmanna.
7. Önnur mál.
9. gr.
Lagabreytingar.
Lögum samtakanna verður aðeins breytt á aðalfundi þeirra. Tillögum til lagabreytinga skal skila til stjórnar 7 dögum fyrir aðalfund. Nái lagabreytingatillaga samþykki 2/3 hluta fundarmanna telst hún samþykkt.


10. gr.
Stjórn samtakanna.
Stjórn félagsins skulu skipa þrír félagsmenn löglega kosnir á aðalfundi. Stjórnin hefur æðsta vald í málefnum Fjallavinafélagsins Kára á milli aðalfunda og sér um að framfylgja stefnu félagsins. Stjórnarfundi skal halda
að minnsta kosti ársfjórðungslega og skal boða til þeirra með tryggum hætti. Stjórnarfundur er ályktunarhæfur ef 2/3 stjórnarmanna mætir. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum á stjórnarfundum. Ef atkvæði falla jafnt ræður
atkvæði formanns.

11. gr.
Framkvæmdastjórn.
Stjórn Fjallavinafélagsins Kára kýs sér sjálf úr sínum hópi formann, ritara og gjaldkera, er fara með dagleg störf félagsins, framfylgja stefnu aðalfundar og stjórnar, koma fram fyrir hönd félagsins á opinberum vettvangi, fylgjast með hagsmunamálum félagsins og miðla upplýsingum um það sem á döfinni er hverju sinni. Þessir aðilar eru jafnframt framkvæmdastjórn félagsins. Stjórnin velur menn til annarra trúnaðarstarfa fyrir Fjallavinafélagið Kára. 

12. gr.
Slit samtakanna
Um tillögu til slita á samtökunum fer eins og um lagabreytingatillögu sé að ræða. Við slit Fjallavinafélagsins Kára skal eignum og skuldum skipt jafnt milli aðildarfélaga að frádregnum sannanlegum sérframlögum félagsmanna.

Aftur á aðalsíðu