Páskar 2005

Planið fyrir páskaferðina var að renna inn í Kerlingafjöll og taka restina af deginum þar í að skemmta sér á skíðum og sleðum,  Höfðum hins vegar spurnir af því að Fossá væri ófær og því var stefnan tekin á Hveravelli.
 

Við Hvítárvatn.  Bjarki í náttúruskoðun

Fyrsti pytturinn á leiðinni.  Breska heimsveldið slapp yfir en öðrum reyndist pytturinn erfiður.

Sú stóra (já Palli kvengerir Krúserinn) pikkföst.

Flaggskipið í drætti hjá Gamla bílnum.

Allt að gerast

Spenntir áhorfendur

 

Sú stóra náðist ekki upp fyrr en beitt var spili og kippt í með teyjuspotta samhliða

Hér reyndist hins vegar of þungt í krapanum fyrir Bretann.

Og gamli bílinn stopp.  Það skal tekið fram að við vorum ekki endilega alltaf föst, heldur var málið að þá náðust bílarnir helst á mynd.

Listræn kókauglýsing frá Daníel Leó

Jökull Máni, Gunni hási og Skúli taka þátt í kókáróðrinum.

Tvær kynslóðir frá Krúsa frænda.

Næsta síða