Skúli, Magga, Birgir og Óli Ylur fóru helgina 24.-25. september 2006 í
bíltúr inn á Sprengisand með göngutúr upp á Tungnafellsjökul.
Eftir gönguna var gist í Laugafelli og svo sunnudagurinn tekinn í
Vonarskarð og Bárðargötu niður í Jökulheima. Stórskemmtileg leið.

Gangan að hefjast á Tungnafellsjökul.

Uppi í miðjum hlíðum.

Leiðin sem var valin liggur upp á brúnunum meðfram skriðjökli sem rennur vestur úr jöklinum. Falleg og skemmtileg leið.

Miðhálendið að baki. Efst til vinstri sést Miklafell í jaðri Hofsjökuls.

Komin upp á öskjubrúnina og þá opnast sýn yfir Vonarskarð og upp á Bárðarbungu.

Á hæsta tindi. Þaðan sáust Kverfjöll í austri, niður í Eyjafjörð, Mælifell í Skagafirði, og Hekla í suðvestri.

Útsýnið skoðað á niðurleið.

Horft til norð-vesturs.

Hér er komið fram á sunnudag og staldrað við á brúninni við Gjóstuklif.

Við Hníflana. Reyndar komið að þeim áður en farið er niður Gjóstuklif.

Skúlptúrar náttúrunnar.


Enn við Hníflana. Skotfingur myndavélarinnar missir stjórn á svona stað.

Tindfell.

Tékkað á baðaðstöðunni. Þessi pottur reyndist heldur of heitur.

Ótrúlega rauður botn.

Hér voru réttu aðstæðurnar fyrir baðið. Vel heit laug en ekki um of, en kannski heldur lítil fyrir stóra hópa.

Syðri Háganga og Hágöngulón. Vissulega geta virkjanalón verið falleg að sjá í vissum tilfellum, þó deila megi um verðmæti fórnarinnar, en Fögruhverir kúra þarna undir vatni.

Mikið er af glæsilegum klettamyndunum á Bárðargötu og landslagið með því hrikalegra sem finnst.