Hvað er Fjallavinafélagið Kári
Meðal þess sem til þurfti til að framkvæma leiðangurinn í Dimmugljúfur var úrval af góðu fólki, s.s. kraftmikla ræðara, nóg af góðum jeppum, kokka, aðstoðarmenn fyrir kvikmyndatökulið o.s.frv. Umfram allt, fólk sem kynni að ferðast í íslenskri náttúru og þekkti ekki hugtakið sérhlífni nema af afspurn. Haukarnir smöluðu því saman þéttum kjarna af fjallafríkum sem féllu að þessum kröfum. Úr þessum hóp varð til sá ferðahópur sem Fjallavinafélagið samanstendur af í dag. Nokkrir góðir hafa bæst við hópinn síðan með því að taka virkann þátt í ferðum félagsins, þannig að félagið fer enn stækkandi. Þessi hópur flækist saman um hálendið með ýmsum hætti, akandi, gangandi eða hjólandi. Meðal fastra liða hjá hópnum eru hinir árlegu Káraleikar, sem er einskonar fjölskylduhátíð þar sem keppt er í hinum fjölbreytilegustu íþróttagreinum, s.s. fjallakrokket, blöðrusiglingum, risasápukúlugerð, risastrengjabraut, frisby-keppni og fleiri greinum fyrir alla fjölskyldumeðlimi. Á veturnar er farið um jökla, m.a. fastur þáttur að fara í Grímsvötn um páskahelgina. Um vef Fjallavinafélagsins Þessi vefur er annars vegar samskiptavettvangur félagsmanna í Fjallavinafélaginu Kára og hins vegar til fróðleiks og skemmtunar fyrir aðra. Við vonum að efnið hér á vefnum veki áhuga þeirra sem hafa áhuga á ferðalögum um fjöll og firnindi og geti jafnvel komið að einhverju gagni. Umsjónarmaður vefsins er Skúli Haukur en margir fleiri félagar eiga efni hér á vefnum. Ljósmyndir eru m.a. frá Haraldi Teitssyni, Hauki Parelíusi, Haukur Hlíðkvist (Kvisturinn) Páli Helgasyni (Palla á móti), og Óttari Arnaldssyni. Myndir úr Dimmugljúfrum tóku Ragnar Axelsson og Þorkell Þorkelsson ljósmyndarar á Morgunblaðinu og Hrafnhildur Skúladóttir, hirðljósmyndari félagsins. Textar og greinar á vefnum eru yfirleitt höfundaverk Haukanna, en auk þeirra hefur Helga Finnsdóttir og fleirri skrifað fróðlega pistla um staði í náttúru Íslands. |